Executive MBA nám
Executive MBA-námið er hagnýtt og krefjandi meistaranám á sviði viðskipta þar sem nemendur virkja kraftinn til þess að takast á við nýjar áskoranir.
Executive MBA-námið er leiðtoganám sem eflir þekkingu, persónulega færni og frumkvæði. Í náminu er forystuhlutverkið greint út frá mörgum sjónarhornum, einkum með tilliti til þess hvernig leiðtogar geta náð árangri í rekstri og samkeppnisforskoti með áherslu á sjálfbærni og stafræna þróun.
Executive MBA-námið veitir nýjar forsendur til starfsframa og er í sterkum tengslum við íslenskt viðskiptalíf.
Umsóknarfrestur rennur út 5. júní.
Haustmisserið hefst föstudaginn 15. ágúst 2025.
Samstarf við IESE
Háskóli Íslands er í öflugu samstarfi við IESE Business School of Navarra í Barcelona, sem er í sjötta sæti yfir þá skóla sem skara fram úr almennt á heimsvísu í Executive MBA-námi samkvæmt mati Financial Times (2023)
Með þessu samstarfi fáum við alþjóðlegan blæ yfir námið og nemendur fá tækifæri að sitja krefjandi og spennandi námskeið í hvorum samstarfsskóla á námstímanum. Samstarfið hefur mikið faglegt gildi fyrir námið í heild og er hluti af alþjóðlegri vottun námsins (AMBA).
Aukin færni
95%
velja Executive MBA-nám til að auka færni og þróa sig í starfi.
Kennt á íslensku
71%
segir að kennsla á íslensku skipti máli þar sem umræður verða dýpri.
Launahækkun
71%
hefur fengið launahækkun eftir að hafa lokið námi.
Stöðuhækkun
67%
hafa skipt um starf eða fengið stöðuhækkun eftir nám.
Samstarf við IESE var spennandi kostur. Ég hafði einnig heyrt góða hluti um námið frá fyrrverandi nemendum og þær tengingar sem þau höfðu myndað eftir námið.
Ég hef nú þegar náð að nýta mér námið í minni vinnu og finnst ég hafa mun fleiri verkfæri en áður til að takast á við verkefni í vinnunni og lífinu.
Mig langaði í krefjandi meistaranám sem myndi henta vel með vinnu. Ég tók BSc í HR þannig að mig langaði að prófa HÍ líka þannig að ég ákvað að taka Executive MBA námið við Háskóla Íslands.
Fyrstu vikurnar hafa verið algjörlega frábærar - skemmtilegir kennarar og nemendur. Er ótrúlega spenntur fyrir þessu. Hvet alla sem hafa tök á að íhuga MBA námið við Háskóla Íslands.
Námið er í senn krefjandi og áhugavert og lærdómsríkt.
Ég var búin að vera að velta MBA námi fyrir mér í nokkur ár og núna í haust var rétti tíminn kominn fyrir þessa áskorun. Ég valdi Háskóla Íslands m.a. vegna þess að námið er að mestu kennt á íslensku og ég tel að umræður verði meiri og dýpri því íslenska er okkar móðurmál.
Námið leggst mjög vel í mig. Mér finnst virkilega gaman að mæta í skólann og hitta samnemendur mína sem eru svo ólík og líka á mjög ólíkum stað í atvinnulífinu.
Þegar það kom að því að setja í annan gír og velja stjórnendanám valdi ég MBA í Háskóla Íslands fram yfir aðra skóla þar sem það er kennt á íslensku. Þar sem ég er ekki með bakgrunn úr viðskiptum, skipti það mig miklu máli að geta tjáð mig á íslensku til að dýpka skilning minn á efninu. Námið er mjög metnaðarfullt og fær maður tækifæri til að vinna með fólki úr fjölbreyttum atvinnugreinum. Kennararnir eru hópur sérfræðinga með breiðan bakgrunn sem koma með áhugaverð raundæmi úr íslensku atvinnulífi sem hjálpar nemendum að setja námsefnið í samhengi. Í náminu hef ég kynnst ólíkum hópi einstaklinga með sterk tengslanet og hlakkar mig til að fara í gegnum þetta ferðalag með þeim. Námið leggst mjög vel í mig og hefur hingað til uppfyllt allar mínar væntingar og kröfur. Öll umgjörð er til fyrirmyndar, virkilega fagleg og metnaðarfull.
Það var kominn tími fyrir nýjar áskoranir skapa tengsl og vaxa sem manneskja og ég sá fram á að allt þetta fengi ég út úr MBA námi. Ástæður þess að ég valdi að fara í HÍ eru helst, mikil tengsl við íslenskt atvinnulíf, sú reynsla og þekking sem kennarar og starfsfólk búa yfir, það að námið fer fram á íslensku.
Námið leggst mjög vel í mig og ég hlakka til helganna þegar við erum í skólanum. Hópurinn okkar náði frá fyrstu helgi afskaplega vel saman og ég horfi til þess með tilhlökkun að fá að læra með þeim næstu tvö árin.
Ég valdi að fara í MBA námið í Háskóla Íslands til að auka við þekkingu mína á fjölmörgun þáttum sem snúa að rekstri og bæta tengslanetið. HÍ var auðvelt val þar sem námið er á íslensku sem dýpkar umræður í tímum og vegna góðrar tengingar við íslenskt atvinnulíf.
Námið hefur hingað til verið framúrskarandi og mætt öllum þeim væntingum sem ég hafði til þess og meira til.
Ég valdi MBA nám HÍ til þess að stækka sjóndeildarhringinn og nálgast nýjar upplýsingar fyrir síbreytilegt umhverfi. Námið hefur verið einstaklega gagnlegt, skemmtilegt en krefjandi um leið. Að kynnast og starfa með framúrskarandi kennurum, starfsfólki og samnemendum er ómetanlegt. Aðstaða nemenda er til fyrirmyndar.
Að velja MBA námið hjá Háskóla Íslands var auðveld ákvörðun fyrir mig. Sterk tengsl við íslenskt atvinnulíf og samstarf við framúrskarandi erlenda háskóla gerir námið að spennandi kosti fyrir mig. Fyrirkomulag kennslu er gott og að námið sé á íslensku gerir umræður betri og dýpri. Raun dæmi í kennslu frá íslensku atvinnulífi gerir það að verkum að skemmtilegt er að takast á við krefjandi nám.
Ég valdi að fara í MBA-nám í Háskóla Íslands vegna einstaklega góðra umsagna vina og samstarfsfélaga um námið. Það er einnig mikilvægt að skólar þrói námsefni og námsaðferðir í samráði við nemendur svo að námið nýtist nemendum sem best en það hefur Háskóli Íslands gert. Að auki er einstakt tækifæri að fá að sækja tíma í erlendum háskóla eins og IESE.
Ég valdi námið vegna þess að ég var sérstaklega spenntur fyrir samstarfinu við erlendan háskóla IESE. Eftir að hafa legið yfir ólíkum námsleiðum til meistaraprófs var það mín niðurstaða að fyrirkomulagið á MBA náminu í HÍ væri hagkvæm leið til að klára nám á meistarastigi með góðu aðhaldi en án þess að missa úr vinnu. Það skipti mig líka máli að vera með ólíkum hópi fólks, alls staðar að úr íslensku atvinnulífi með mikla reynslu sem það væri tilbúið að deila.
Að kennsla fari fram á íslensku skipti mig máli þegar ég valdi námið. Að eiga samræður á íslensku gefur meiri dýpt en að sama skapi er mikill kostur að sitja námskeið í erlendum háskólum.
MBA-námið er nútímalegt, krefjandi og metnaðarfullt. Það byggir á virkri þátttöku nemenda sem koma víða að úr atvinnulífinu. Áhersla er lögð á hagnýt verkefni. Það er einstakt tækifæri að stunda námið við Háskóla Íslands sem er í hópi bestu háskóla í Evrópu.
Ég fékk góða innsýn í fjármál og rekstur fyrirtækja auk þess sem ég öðlaðist mun betri sýn á eigin styrkleika og veikleika sem er lykilatriði þegar kemur að ákvarðanatöku og því að takast á við og leiða flókin verkefni.
Námið veitti mér aðgang að fjölmörgum hagnýtum verkfærum sem hafa nýst mér bæði í leik og starfi. Reynslumiklir gestafyrirlesarar úr íslensku atvinnulífi miðluðu þekkingu sinni af einstakri lagni til nemenda. Ég get hiklaust mælt með MBA-náminu fyrir þá sem vilja efla tengslanetið og auka færni sína í því að takast á við krefjandi áskoranir.