Af hverju MBA?
MBA-námið er hagnýtt meistaranám þar sem nemendur virkja kraftinn til þess að takast á við áskoranir, hljóta þjálfun á sviði viðskipta og rekstrar auk þess að efla persónulega færni sína. MBA-námið veitir nýjar forsendur til starfsframa og er í sterkum tengslum við íslenskt viðskiptalíf.
Í MBA náminu kynnast nemendur íslensku atvinnulífi á víðtækan hátt. Kennarar námsins hafa sérþekkingu á íslensku atvinnulífi gegnum eigin rannsóknir og ráðgjöf.
Markvisst er stefnt að því að hvert námskeið í MBA náminu sé bæði framúrskarandi og metnaðarfullt.
Image

Leiðtogar og fjórða iðnbyltingin
Við viljum að nemendur okkar séu meðvitaðir um áskoranir sem ný tækni, aukin sjálfvirknivæðing og gervigreind hafa í för með sér. Ábyrgir leiðtogar:
- Láta sig heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna varða.
- Sjá tækifæri í því að vera hluti af lausninni - fremur en hluti af vandanum.
- Vilja að fyrirtækin vaxi og dafni í sátt við umhverfið og samfélagið.
- Átta sig á því að ábyrgur rekstur leiðir til bættrar samkeppnisstöðu.
Image

Umsagnir nemenda