Opnað er fyrir umsóknir um miðjan febrúar.

Umsóknarfrestur

Executive MBA-námið er opið til umsóknar öllum þeim sem hafa lokið háskólaprófi og hafa að minnsta kosti þriggja ára starfs-/stjórnunarreynslu. Námið fer fram á íslensku.
Opið er fyrir umsóknir frá og með miðjum febrúar ár hvert. 

Við hvetjum umsækjendur til að sækja snemma um til að auka líkur á plássi. Allar umsóknir eru meðhöndlaðar sem trúnaðarmál. Umsóknarfrestur rennur út 5. júní. Umsóknir sem berast eftir að umsóknarfresti lýkur verða teknar til greina ef pláss leyfir.

  • Námsárið 2025 hefst föstudaginn 15. ágúst

Sækja um

Til að sækja um Executive MBA-nám við Háskóla Íslands þurfa umsækjendur að stofna aðgang á samskiptagátt Háskóla Íslands. Þar geta nemendur sett inn fylgigögn með umsókninni sem nánar er lýst hér að neðan. Athugið að umsagnir skal senda á netfangið mba@hi.is.

Mikilvægt er að skila inn eftirfarandi gögnum Mikilvægt er að skila inn eftirfarandi gögnum

Umsækjendur þurfa að skila inn tveimur umsögnum ásamt umsókn sinni.

Umsagnaraðilar senda sjálf inn umsagnir með tölvupósti og skal senda þær á netfangið mba@hi.is.

Afar mikilvægt er að umsækjendur skrifi stutta greinargerð um:

  • áhuga sinn á Executive MBA-náminu
  • markmiðið með því að fara í námið
  • viljann til að ljúka náminu

Þessi greinargerð er höfð til viðmiðunar þegar valið er í námið.

Með umsókninni þarf að fylgja staðfest afrit af prófskírteini. Smelltu hér til að fá nánari upplýsingar um staðfest afrit af prófskírteini.

  • Þau sem hafa lokið námi frá Háskóla Íslands þurfa ekki að skila slíku inn með umsókn sinni

 

Með umsókninni þarf einnig að fylgja uppfærð starfsferilskrá ásamt mynd.

Share