Skólagjöld

Skólagjöld fyrir Executive MBA-námið skólaárið 2024-2026 eru 4.200.000 kr.

Skólagjöld fyrir Executive MBA-námið skólaárið 2023-2025 eru 4.400.000 kr.

Innifalið er meðal annars:

  • Öll kennsla og kennsluaðstaða
  • Aðgangur að Vinnustofu Kjarval
  • Gott aðgengi að starfsfólki námsins sem annast daglegan rekstur og utanumhald námsins
  • Öll námskeiðsgögn á rafrænu formi og raundæmi
  • Undirbúningsnámskeið og önnur stutt námskeið og fyrirlestrar
  • Námsdvöl hjá IESE í Barcelona á Spáni. Þar er innifalið kennsla og kennsluefni. Flug, gisting og rútuferðir eru ekki innifalin
  • Ávextir í kaffihléum á kennsludögum
  • Fundaraðstaða
  • Ýmsir viðburðir, ráðstefnur og örnámskeið
Image
MBA-útskriftarnemar fyrir utan Aðalbyggingu Háskóla Íslands

Skipting skólagjalda eftir misserum

 

Skrásetningargjald/Staðfestingargjald til greiðslu í júní er kr. 200.000.

  • Skrásetningargjald/staðfestingargjald er í öllum tilfellum óendurkræft

Misserisgjald 2024-2026

September (lota 1) 500.000 kr. Október (lota 2) 500.000 kr.  
Febrúar (lota 3) 500.000 kr. Mars (lota 4) 500.000 kr.
September (lota 5) 500.000 kr. Október (lota 6) 500.000 kr.
Febrúar (lota 7) 500.000 kr. Mars (lota 8) 500.000 kr.

 

Misserisgjald er ekki hægt að fá endurgreitt né niðurfellt eftir að misseri hefst formlega.