Jólagleði Executive MBA og MBA HÍ Alumni og var haldin 18. nóvember síðastliðinn á Vinnustofu Kjarval
Jólagleðin er kærkomið tækifæri fyrir núverandi og brautskráða nemendur til að koma saman, hitta gamla og nýja félaga, efla tengslanetið og eiga notalega stund í góðum félagsskap.
Birna Rún Eiríksdóttir, leikkona, sló á létta strengi með skemmtilegu uppistandi og vakti mikla kátínu meðal gesta.
Við þökkum öllum sem komu kærlega fyrir góða samveru og deilum hér nokkrum myndum frá kvöldinu sem Guðrún Hrönn Jónsdóttir, ljósmyndari, tók
