Forysta - Framsýni - Nýsköpun

Menntun er fjárfesting

Hendur sem halda á útskriftarhúfum
Forysta - Framsýni - Nýsköpun

Framtíðin er í þínum höndum

Forysta - Framsýni - Nýsköpun

Menntun er fjárfesting

Forysta - Framsýni - Nýsköpun

Framtíðin er í þínum höndum

Forysta - Framsýni - Nýsköpun

Menntun er fjárfesting

Hendur sem halda á útskriftarhúfum
Forysta - Framsýni - Nýsköpun

Framtíðin er í þínum höndum

Forysta - Framsýni - Nýsköpun

Menntun er fjárfesting

Forysta - Framsýni - Nýsköpun

Framtíðin er í þínum höndum

Fréttir og viðburðir
Hópmynd

Umsagnir nemenda

Ég var búin að velta MBA námi fyrir mér í nokkur ár, með það markmið að dýpka þekkingu mína á íslensku atvinnulífi. Það var síðan vinnan sem hvatti mig í að láta slag standa. Ég valdi HÍ þar sem ég hef góða reynslu úr fyrra námi og hafði heyrt frábæra hluti um MBA námið.

Eftir nokkrar vikur í námi er ljóst að markmiðinu verður náð, ég er farin að fletta í gegnum Viðskiptablaðið óumbeðin og bónusinn er allt skemmtilega fólkið sem maður kynnist.

Árgangur 2026

Mig hafði lengi langað í meistaranám og lét loks verða af því. Kosturinn við MBA námið er að það hentar vel með starfi og nýtist mér sem endurmenntun og til að bæta við mig þekkingu.

Skipulag námsins og allt utanumhald er til mikillar fyrirmyndar. Kennararnir eru góðir fagmenn í sínum greinum og tengjast atvinnulífinu sem er dýrmætt. Einnig er stór partur af náminu að kynnast nýju fólki með fjölbreyttan bakgrunn. Þess vegna verða umræður í kennslustundum og verkefnavinnu bæði áhugaverðar og skemmtilegar.

Árgangur 2026

Sóley Elíasdóttir

Ég var búin að vera að velta MBA námi fyrir mér í nokkur ár og núna í haust var rétti tíminn kominn fyrir þessa áskorun. Ég valdi Háskóla Íslands m.a. vegna þess að námið er að mestu kennt á íslensku og ég tel að umræður verði meiri og dýpri því íslenska er okkar móðurmál. 
Námið leggst mjög vel í mig. Mér finnst virkilega gaman að mæta í skólann og hitta samnemendur mína sem eru svo ólík og líka á mjög ólíkum stað í atvinnulífinu.

Árgangur 2025

Steinunn Arna Jóhannesdóttir

Þegar það kom að því að setja í annan gír og velja stjórnendanám valdi ég MBA í Háskóla Íslands fram yfir aðra skóla þar sem það er kennt á íslensku. Þar sem ég er ekki með bakgrunn úr viðskiptum, skipti það mig miklu máli að geta tjáð mig á íslensku til að dýpka skilning minn á efninu. Námið er mjög metnaðarfullt og fær maður tækifæri til að vinna með fólki úr fjölbreyttum atvinnugreinum. Kennararnir eru hópur sérfræðinga með breiðan bakgrunn sem koma með áhugaverð raundæmi úr íslensku atvinnulífi sem hjálpar nemendum að setja námsefnið í samhengi.  Í náminu hef ég kynnst ólíkum hópi einstaklinga með sterk tengslanet og hlakkar mig til að fara í gegnum þetta ferðalag með þeim. Námið leggst mjög vel í mig og hefur hingað til uppfyllt allar mínar væntingar og kröfur. Öll umgjörð er til fyrirmyndar, virkilega fagleg og metnaðarfull.

Árgangur 2025

Þ. Karen Þórólfsdóttir

Það var kominn tími fyrir nýjar áskoranir skapa tengsl og vaxa sem manneskja og ég sá fram á að allt þetta fengi ég út úr MBA námi. Ástæður þess að ég valdi að fara í HÍ eru helst, mikil tengsl við íslenskt atvinnulíf, sú reynsla og þekking sem kennarar og starfsfólk búa yfir, það að námið fer fram á íslensku. 
Námið leggst mjög vel í mig og ég hlakka til helganna þegar við erum í skólanum. Hópurinn okkar náði frá fyrstu helgi afskaplega vel saman og ég horfi til þess með tilhlökkun að fá að læra með þeim næstu tvö árin.

Árgangur 2025

Málfríður Guðný Kolbeinsdóttir

Samstarf við IESE var spennandi kostur. Ég hafði einnig heyrt góða hluti um námið frá fyrrverandi nemendum og þær tengingar sem þau höfðu myndað eftir námið.
Ég hef nú þegar náð að nýta mér námið í minni vinnu og finnst ég hafa mun fleiri verkfæri en áður til að takast á við verkefni í vinnunni og lífinu.

Árgangur 2024

Róbert Geir Gíslason

Ég valdi að fara í MBA námið í Háskóla Íslands til að auka við þekkingu mína á fjölmörgun þáttum sem snúa að rekstri og bæta tengslanetið. HÍ var auðvelt val þar sem námið er á íslensku sem dýpkar umræður í tímum og vegna góðrar tengingar við íslenskt atvinnulíf.

Námið hefur hingað til verið framúrskarandi og mætt öllum þeim væntingum sem ég hafði til þess og meira til.

Árgangur 2024

Brynjar Eldon Geirsson

Ég valdi MBA nám HÍ til þess að stækka sjóndeildarhringinn og nálgast nýjar upplýsingar fyrir síbreytilegt umhverfi. Námið hefur verið einstaklega gagnlegt, skemmtilegt en krefjandi um leið. Að kynnast og starfa með framúrskarandi kennurum, starfsfólki og samnemendum er ómetanlegt. Aðstaða nemenda er til fyrirmyndar.

Árgangur 2024

Reynir Stefánsson

Að velja MBA námið hjá Háskóla Íslands var auðveld ákvörðun fyrir mig. Sterk tengsl við íslenskt atvinnulíf og samstarf við framúrskarandi erlenda háskóla gerir námið að spennandi kosti fyrir mig. Fyrirkomulag kennslu er gott og að námið sé á íslensku gerir umræður betri og dýpri.  Raun dæmi í kennslu frá íslensku atvinnulífi gerir það að verkum að skemmtilegt er að takast á við krefjandi nám.

Árgangur 2024

Sunna Hrönn Sigmarsdóttir

Ég valdi að fara í MBA-nám í Háskóla Íslands vegna einstaklega góðra umsagna vina og samstarfsfélaga um námið. Það er einnig mikilvægt að skólar þrói námsefni og námsaðferðir í samráði við nemendur svo að námið nýtist nemendum sem best en það hefur Háskóli Íslands gert. Að auki er einstakt tækifæri að fá að sækja tíma í erlendum háskóla eins og IESE.

Árgangur 2024

Gestur Kolbeinn Pálmason

Ég valdi námið vegna þess að ég var sérstaklega spenntur fyrir samstarfinu við erlendan háskóla IESE. Eftir að hafa legið yfir ólíkum námsleiðum til meistaraprófs var það mín niðurstaða að fyrirkomulagið á MBA náminu í HÍ væri hagkvæm leið til að klára nám á meistarastigi með góðu aðhaldi en án þess að missa úr vinnu. Það skipti mig líka máli að vera með ólíkum hópi fólks, alls staðar að úr íslensku atvinnulífi með mikla reynslu sem það væri tilbúið að deila.

Árgangur 2022

Reynir Leósson

Að kennsla fari fram á íslensku skipti mig máli þegar ég valdi námið. Að eiga samræður á íslensku gefur meiri dýpt en að sama skapi er mikill kostur að sitja námskeið í erlendum háskólum.

Árgangur 2020

Hafdís Hrönn Ottósdóttir

MBA-námið er nútímalegt, krefjandi og metnaðarfullt. Það byggir á virkri þátttöku nemenda sem koma víða að úr atvinnulífinu. Áhersla er lögð á hagnýt verkefni. Það er einstakt tækifæri að stunda námið við Háskóla Íslands sem er í hópi bestu háskóla í Evrópu.

Árgangur 2020

Alma Tryggvadóttir

Ég fékk góða innsýn í fjármál og rekstur fyrirtækja auk þess sem ég öðlaðist mun betri sýn á eigin styrkleika og veikleika sem er lykilatriði þegar kemur að ákvarðanatöku og því að takast á við og leiða flókin verkefni.

Árgangur 2016

Sigurbjörn Ingimundarson

Námið veitti mér aðgang að fjölmörgum hagnýtum verkfærum sem hafa nýst mér bæði í leik og starfi. Reynslumiklir gestafyrirlesarar úr íslensku atvinnulífi miðluðu þekkingu sinni af einstakri lagni til nemenda. Ég get hiklaust mælt með MBA-náminu fyrir þá sem vilja efla tengslanetið og auka færni sína í því að takast á við krefjandi áskoranir.

Árgangur 2017

95%

velja Executive MBA-nám til að auka færni og þróa sig í starfi.

71%

segir að kennsla á íslensku skipti máli þar sem umræður verða dýpri.

71%

hefur fengið launahækkun eftir að hafa lokið námi.

67%

hafa skipt um starf eða fengið stöðuhækkun eftir nám.