Umsókn um Executive MBA-nám
Opið er fyrir umsóknir
Umsóknarfrestur
Executive MBA-námið er opið til umsóknar öllum þeim sem hafa lokið háskólaprófi og hafa að minnsta kosti þriggja ára starfs-/stjórnunarreynslu. Námið fer fram á íslensku. Opnað verður fyrir umsóknir um miðjan febrúar 2024.
Við hvetjum umsækjendur til að sækja snemma um til að auka líkur á plássi. Allar umsóknir eru meðhöndlaðar sem trúnaðarmál. Umsóknarfrestur rennur út 5. júní. Umsóknir sem berast eftir að umsóknarfresti lýkur verða teknar til greina ef pláss leyfir.
- Námsárið 2024 hefst fimmtudaginn 16. ágúst 2024.
Sækja um
Til að sækja um Executive MBA-nám við Háskóla Íslands þurfa umsækjendur að stofna aðgang á samskiptagátt Háskóla Íslands. Þar geta nemendur sett inn fylgigögn með umsókninni sem nánar er lýst hér að neðan. Athugið að umsagnir skal senda á netfangið mba@hi.is.
Mikilvægt er að skila inn eftirfarandi gögnum
Umsækjendur þurfa að skila inn tveimur umsögnum ásamt umsókn sinni.
- Hér er hægt að nálgast eyðublað fyrir umsagnaraðila
- Hér sniðmát á ensku af "letter of reference"
Umsagnaraðilar senda sjálf inn umsagnir með tölvupósti og skal senda þær á netfangið mba@hi.is.
Afar mikilvægt er að umsækjendur skrifi stutta greinargerð um:
- áhuga sinn á Executive MBA-náminu
- markmiðið með því að fara í námið
- viljann til að ljúka náminu
Þessi greinargerð er höfð til viðmiðunar þegar valið er í námið.
Með umsókninni þarf að fylgja staðfest afrit af prófskírteini. Smelltu hér til að fá nánari upplýsingar um staðfest afrit af prófskírteini.
- Þau sem hafa lokið námi frá Háskóla Íslands þurfa ekki að skila slíku inn með umsókn sinni
Með umsókninni þarf einnig að fylgja uppfærð starfsferilskrá ásamt mynd.