Föstudaginn 14. ágúst hóf nýr árgangur MBA-nemenda nám við Háskóla Íslands. Bekkurinn samanstendur af 23 nemendum með fjölbreyttan bakgrunn og ólíka reynslu úr atvinnulífinu.


Rektor Háskóla Íslands, Dr. Silja Bára Ómarsdóttir bauð nemendur velkomin og deildi hagnýtnum ráðum fyrir tveggja ára ferðalagið sem nú er hafið.

Gestur Pálmason, MBA 2022 og markþjálfi, leiddi nemendur í gegnum lifandi vinnustofu um persónulega færni og hópefli, þar sem nemendur fengu tækifæri til að kynnast betur og styrkja tengsl sín.


Árgangur 2027 hóf um leið seinna árið sitt náminu en þar er alls 36 nemandi. Það eru því 59 nemendur sem stunda nú Executive MBA-nám við Háskóla Íslands.


Deginum lauk með haustfagnaði MBA-nemenda, þar sem árgangarnir hittust, deildu reynslu og styrktu tengsl sín og veðurguðirnir blessuðu okkur með góðu veðri

Við hlökkum til að kynnast nýjum nemendum og bjóðum þau velkomin í MBA-samfélagið og Háskóla Íslands.

MBA árgangur 2028
MBA árgangur 2027
Share