Tengsl við atvinnulífið

Titill
Breyttar aðstæður stjórnenda

Text

Óhætt er að segja að námið hafi haft mikil áhrif á þennan öfluga hóp nemenda sem þegar hefur lokið Executive MBA-prófi frá Háskóla Íslands. Margir þeirra hafa virkjað betur eigin krafta til að takast á við áskoranir og líkt áhrifum námsins við sjálfsendurnýjun eða heildaruppgötvun eigin hæfileika.

Komið hefur skýrt fram hjá brautskráðum nemendum hve miklu máli áherslan á persónulega færni og stjórnendaþjálfun í náminu skiptir.

Hlutverk stjórnenda hefur breyst jafnt og þétt. Ný kynslóð er að koma inn á vinnumarkaðinn sem er með gjörbreytta færni miðað við ungt fólk fyrir um 10-15 árum. Kröfur um árangur, upplýsingamiðlun og nærveru stjórnenda eru aðrar en áður var.

Mynd
Image
Námskeið: Miðlun upplýsinga

Gestafyrirlesarar

Kennarar í Executive MBA-námi leggja sig fram um að tengja viðfangsefni á hverjum tíma við raunhæfar aðstæður eins og kostur er. Liður í því eru heimsóknir annars vegar til fyrirtækja og stofnana, hins vegar heimsóknir gestafyrirlesara. Með þessu móti skapast mikilvæg tengsl námsins og viðskiptaumhverfisins þar sem nemendum gefst tækifæri til að fá innsýn í hagnýtingu ólíkra þátta úr náminu.

Í Executive MBA-náminu er lögð áhersla á að styrkja alla þá þætti sem reynir á í störfum stjórnenda hvort sem um er að ræða rekstrarlega þætti, að skerpa á stóru myndinni eða byggja upp persónulega færni til að taka ákvarðanir þar sem rétta svarið er ekki alltaf augljóst.

Image
Námskeið: Miðlun upplýsinga

100 verkefni fyrir íslenskt atvinnulíf

Í Executive MBA-náminu er hópavinna einna mikilvægust fyrir marga nemendur. Þar mætast einstaklingar úr ólíkum áttum með stjórnunarreynslu sem laðar fram ný sjónarhorn.

Nemendur styrkja tengslanetið innbyrðis og mikilvæg tengsl skapast við atvinnulífið, ekki síst í gegnum þau verkefni sem unnið er að. Á yfirstandandi skólaári lætur nærri að Executive MBA-nemendur vinni um 100 verkefni fyrir ólíka aðila í íslensku atvinnulífi.

Framlag nemenda við vinnu raunhæfra verkefna er mikilvæg brú á milli Executive MBA-nemenda og viðskiptalífsins og spurn fyrirtækja eftir vinnu nemenda er til marks um það.

Image
Heimsókn MBA-nema í Íslandsbanka