Samstarf við Yale og IESE
Samstarf við Yale og IESE
Háskóli Íslands hefur gengið til samstarfs við Yale School of Management í Bandaríkjunum og IESE Business School of Navarra í Barcelona, sem báðir er í allra fremstu röð í heiminum á sviði MBA-náms.
Með samstarfinu mun MBA-nám við Háskóla Íslands eflast verulega en það felur í sér að MBA-nemar Háskólans sitja afar krefjandi og öflug námskeið í hvorum samstarfsskóla á námstímanum.
- Yale School of Management er hluti af Yale-háskóla sem er í áttunda sæti yfir bestu háskóla heims samkvæmt röðun Times Higher Education.
- Yale School of Mangement er auk þess í ellefta sæti yfir þá skóla sem skara fram úr á heimsvísu í MBA-námi og IESE er í því tólfta samkvæmt mati Financial Times.

Samstarf við þessa virtu háskóla hefur mikið faglegt gildi fyrir námið í heild og setur MBA-nám Háskóla Íslands í flokk þess besta.
Háskóli Íslands er nú þegar í hópi 250 bestu háskóla í heimi á hinum viðurkennda matslista Times Higher Education. Sú staða byggist ekki síst á mjög öflugu rannsóknastarfi og birtingum greina vísindamanna skólans í viðurkenndum erlendum vísindatímaritum.
Styrkur Háskólans á listanum hefur tryggt honum fjölda samstarfssamninga við marga af fremstu háskólum heims.

Þeir sem hefja MBA-nám í haust í Háskóla Íslands munu fara í námsferð til IESE í Barcelona á vorönn 2021 og til Yale í New Haven í Bandaríkjunum á haustönn sama ár.
Samstarf við þessa virtu háskóla hefur mikið faglegt gildi fyrir námið í heild og setur MBA-nám Háskóla Íslands í flokk þess besta. Háskóli Íslands er nú þegar í hópi 250 bestu háskóla í heimi á hinum viðurkennda matslista Times Higher Education. Sú staða byggist ekki síst á mjög öflugu rannsóknastarfi og birtingum greina vísindamanna skólans í viðurkenndum erlendum vísindatímaritum.
Styrkur Háskólans á listanum hefur tryggt honum fjölda samstarfssamninga við marga af fremstu háskólum heims.
