Fyrir hverja er Executive MBA-námið?

  • Langar þig í framúrskarandi og metnaðarfullt Executive MBA-nám?
  • Vilt þú auka leiðtoga- og samstarfshæfni þína?
  • Ert þú tilbúin/n að auka persónulega færni þína í stjórnun og rekstri með áherslu á sjálfbærni og stafræna þróun?
  • Hefur þú gaman af því að vinna raunverkefni, skoða fjölmarga þætti í rekstri ólíkra fyrirtækja á gagnrýninn hátt og koma með tillögur að umbótum?
  • Vilt þú nám þar sem þú myndar sterkt tengslanet við samnemendur og einstaklinga í fyrirtækjum?
  • Langar þig í nám undir leiðsögn kennara sem hafa sérþekkingu og reynslu á íslensku atvinnulífi?

Ef þú svarar þessum spurningum játandi gæti Executive MBA-nám verið fyrir þig.

Hvernig nýtist námið best?

Til að nemendur fái sem mest út úr náminu er mikilvægt að þau

  • geti tjáð sig á opinn hátt, miðlað reynslu sinni, lært af öðrum og styrkt tengslanetið,
  • taki virkan þátt í hópastarfi með tilheyrandi virðingu fyrir samnemendum og kennurum,
  • hafi sýnt frumkvæði af ýmsum toga á sínum ferli. Til dæmis á vinnustaðnum, í einkalífinu, hafi stofnað fyrirtæki eða samtök eða hafi komið af stað tilteknu verkefni.

Hæfileikar og reynsla eru gott innlegg í árangursríkt nám.

Image
MBA-nemendur í kennslutíma

Lykilþættir fyrir framtíðarnemendur

  • góður undirbúningur fyrir tíma
  • gott skipulag
  • virk þátttaka í umræðum

Executive MBA-námið einkennist af miklum hraða og mikilli yfirferð á stuttum tíma.

Í mörgum tilfellum er verið að vinna með raundæmi (case studies) þar sem virk þátttaka allra er forsenda þess að nemendur fái það út úr náminu sem til er ætlast.

Mikið er lagt upp úr trúnaði og þagnarskyldu við meðhöndlun ólíkra upplýsinga.

Image
MBA-nemendur á námsferð í Yale

Vinnuframlag í námi

Nemendur þurfa að gera ráð fyrir um 25-35 klst. vinnuframlagi í námið á viku, hluta þess tíma má samnýta með vinnu  þ.e. vinnustaðatengdri verkefnavinnu.

Skipulag námsins miðar að því að nemendur geti unnið fulla vinnu með náminu, en ljóst er að verulegur hluti af frítíma nemenda fer í námið.

Rétt er að undirstrika að fyrsta misserið er krefjandi því þá er verið að aðlaga lífsmátann skólastarfinu.

Image
MBA-nemendur í kennslutíma

Forsendur inngöngu

Þriggja ára starfsreynsla er forsenda fyrir inngöngu.

Executive MBA-nemendur í Háskóla Íslands eru stjórnendur og sérfræðingar og hafa að meðaltali rúmlega 14 ára stjórnunarreynslu úr atvinnulífinu.

Nemendur hafa fyrsta háskólapróf (BS eða BA) og er meðalaldur þeirra 41 ár.

Kynjahlutföllin í náminu eru nokkuð jöfn eða um 42% konur og 58% karlar og aldur MBA-nemenda er á bilinu 29-61 árs.

Í umsóknarferlinu er óskað eftir rökstuðningi umsækjenda fyrir því hvers vegna þau vilji leggja stund á Executive MBA-nám. Einnig er óskað eftir umsögnum um nemendur, t.d. frá samstarfsfólki.

Image
MBA-nemendur í kennslutíma

Fjölbreyttur bakgrunnur

Bakgrunnur Executive MBA-nemenda er ólíkur, m.a. úr

  • arkitektúr
  • fatahönnun
  • félagsfræði
  • fjölmiðlafræði
  • grafísk hönnun
  • guðfræði
  • heimspeki
  • hjúkrunarfræði
  • iðnhönnun
  • iðnmeistaranám
  • kennslufræði
  • leiklist
  • lögfræði
  • lögreglu og löggæslufræði
  • lyfjafræði
  • læknisfræði
  • matvælafræði
  • sálfræði
  • sjávarútvegsfræði
  • tungumálum
  • tölvunarfræði
  • viðskiptafræði
  • verkfræði

 

Image
MBA-nemendur á námsferð í IESE