Skrifstofur Háskóla Íslands verða flestar lokaðar í afmarkaðan tíma í sumar. Skrifstofa Executive MBA-námsins verður lokuð frá 8. júlí til og með 4. ágúst.
Öllum fyrirspurnum varðandi laus pláss í náminu verður svarað eftir 4. ágúst.
Þjónustuborðið á Háskólatorgi er opið í allt sumar, frá mánudegi til föstudags, milli kl. 8.30 - 15.00.
Við hlökkum til að taka á móti nemendum, nýjum og núverandi, á komandi skólaári.
