Kynningarfundur á Executive MBA-náminu við Háskóla Íslands verður haldinn þriðjudaginn 17. mars kl. 8:45 á Teams.
Nauðsynlegt er að skrá sig á fundinn hér fyrir neðan.
Á fundinum verður farið yfir uppbyggingu og skipulag námsins. Við ræðum kosti þess að velja nám með kennurum með yfirgripsmikla þekkingu á íslensku atvinnulífi, kynnum námsferð til IESE og svörum öllum helstu spurningum um námið.
Núverandi nemendur sitja fyrir svörum og segja frá sinni reynslu af náminu.
