Við hátíðarathöfn Executive MBA við Háskóla Íslands eru veittar viðurkenningar til framúrskarandi nemenda.
Viðskiptafræðistofnun verðlaunar þann nemanda sem hlýtur hæstu meðaleinkunnina í náminu hverju sinni sem og semi-dúx.
Á hverju ári velja MBA-nemendur úr sínum hópi þá samnemendur sem að þeirra mati hafa skarað fram úr á ákveðnum sviðum. Viðurkenningar eru veittar þeim sem samnemendur telja sig hafa lært mest af í náminu, þeim sem þykir búa yfir bestu samskiptafærninni, þeim sem samnemendum fannst best að vinna með og þeim sem talinn er hafa sýnt mesta forystuhæfileika.
Veitt eru verðlaun fyrir besta lokaverkefnið en það er MBA HÍ Alumni sem velur það verkefni sem best þykir hverju sinni.
