Lokaverkefni
Í lok Executive MBA-námsins vinna nemendur hagnýtt lokaverkefni þar sem þeim gefst tækifæri til að kafa dýpra inn á sitt áhugasvið undir handleiðslu leiðbeinenda sem hafa sérþekkingu á viðkomandi sviði.
Fjölbreytni einkennir þessi verkefni og hafa þau verið unnin fyrir ólíkar atvinnugreinar:
- Nýsköpunarverkefni
- Rannsóknarverkefni
- Hagkvæmnisathuganir
- Þróun viðskiptahugmynda eða innleiðingarverkefni
- Verkefni í samvinnu við fyrirtæki og stofnanir í íslensku atvinnulífi
Fyrirtæki og stofnanir eru hvött til að hafa samband við Executive MBA-námið ef forsvarsmenn þeirra hafa áhuga á að fá nemendur til að vinna að verkefnum í tengslum við reksturinn.
Vinna við lokaverkefni hefst strax við upphaf síðasta misseris námsins og vinna nemendur að verkefninu út misserið.