IESE

 

Í mars / apríl á fyrra námsári er farið í námsferð til IESE Business School í Barcelona, Spáni. Tilgangur þessara ferðar er að gefa nemendum tækifæri á að nema við erlendan háskóla í fremstu röð og sitja þar námskeið sem eru kennd af þarlendum kennurum. Þessi ferð er krefjandi og skemmtileg og gefur góða innsýn í starf erlends háskóla af hæstu gæðum.

Þar er kennt þriggja daga námskeið sem ber heitið The Art of Leadership (Listin að leiða). Í því námskeiði er m.a. leitað í smiðju fótboltans þar sem einn kennsludagur fer fram á fótboltavelli FC Barcelona.

Samstarf við IESE í Barcelona hefur mikið faglegt gildi fyrir námið í heild og setur Executive MBA-nám Háskóla Íslands í flokk þess besta.

Þá er IESE í þriðja sæti á heimsvísu frá árinu 2025 skv. Financial Times, þegar kemur að sérsniðnum stjórnendanámskeiðum líkt og við bjóðum nemendum okkar upp á, þar sem markmiðið er að styrkja leiðtogahæfni nemenda.

Barcelona
Share