Rakel og Már

Það er alltaf áhugavert að heyra um fjölskyldumeðlimi sem fara í gegnum sama nám, þótt það hafi ekki verið á sama tíma. Þegar tvær kynslóðir velja sömu leið skapast ákveðin sameiginleg reynsla, þó aðstæður og tímasetningar séu ólíkar.

Feðginin Már Þórarinsson, MBA 2022 og Rakel Másdóttir, MBA 2026, fóru hvort um sig í MBA-nám á mismunandi tímum og við ólíkar aðstæður. Már hóf nám á tímum mikilla breytinga í samfélaginu en Rakel á öðrum forsendum nokkrum árum síðar. Þau segja hér frá ákvörðunum sínum, reynslunni af náminu og þeim áhrifum sem það hefur haft á störf þeirra og faglega þróun.

Rétti tíminn

Már hafði lengi haft það á bak við eyrað að mennta sig meira í stjórnun og afla sér breiðari þekkingar á rekstri. Hann hafði gegnt fjölmörgum stjórnunarstöðum, sérstaklega í tengslum við flugið, og fann að hann vildi dýpka skilning sinn á stjórnun og rekstri. Í raun hafði hann alltaf ætlað sér í frekara nám en gaf sér aldrei tíma til þess. Eins og svo oft áður var einfaldlega mikið að gera og hann sá ekki alveg hvar hann ætti að finna svigrúm fyrir námið.

Már og Rakel dóttir hans eru góðir vinir og hún hafði í gegnum tíðina verið dugleg að draga hann með sér í ýmis verkefni. Fyrir nokkrum árum ákvað hún að skrá sig á kynningarfund um MBA-nám við HÍ og fékk pabba sinn með sér. Már hafði fylgst með vinum fara í gegnum námið og ákvað að slá til og kynna sér það nánar. Það var þó ekki fyrr en tveimur árum síðar, þegar hann stóð á ákveðnum tímamótum og var að stofna fyrirtæki, að hann lét verða af því að hefja námið. Má fannst það fullkominn tími til að efla þekkingu sína á rekstri samhliða uppbyggingu eigin fyrirtækis. Þrátt fyrir efasemdir um aukið álag reyndist ákvörðunin afar góð og námið hjálpaði honum mikið við að byggja fyrirtækið upp. Ef Már gæti gefið sjálfum sér eitt ráð í upphafi MBA-námsins væri það að reyna að njóta vegferðarinnar, enda fylgir því ákveðinn söknuður þegar félagsskapnum lýkur. Már gaf Rakel þó ekki nákvæmlega sama ráð. Hann minnist þess að hafa sagt við dóttur sína að námið væri krefjandi en vel skipulagt og að stærsta áskorunin fælist í fyrstu vikunum, á meðan verið væri að ná jafnvægi milli náms, vinnu og einkalífs.
Stærsti lærdómurinn sem Már vonar að Rakel taki með sér úr náminu er sá að engin verkefni séu of stór og að hún geti allt ef áhuginn er fyrir hendi.

Að mati Más virðist námið í dag vera meira í takt við nútímann en þegar hann sjálfur hóf það og að hans mati hafði MBA-námið veruleg áhrif á starfsferils hans og segist hann búa yfir mun meira sjálfstrausti til að takast á við stór verkefni og til að starfa í eigin rekstri.

Að spegla sig í hvort öðru

Reynsla þeirra af náminu er að mörgu leyti lík, en þó jafnframt ólík. Már hóf MBA-nám haustið 2020, í miðjum covid-faraldri, og upplifði því krísu- og breytingastjórnun á allt öðrum forsendum en áður hafði þekkst. Að því leyti er upplifun þeirra ólík. Þá hafa einnig námskeið breyst á milli ára, þó grunnurinn í náminu sé ætíð sá sami. Þau njóta góðs af því að geta speglað sig í hvort öðru og borið saman reynslu sína af náminu.
Feðginin ræða reglulega saman um verkefni og námskeið. Þau hafa jafnframt oft lesið yfir verkefni hjá hvort öðru og veitt gagnleg ráð, meðal annars um áhersluatriði og framsetningu.
Rakel segir að það hafi verið virkilega áhugavert að fylgjast með föður sínum í gegnum námið. Þegar námslotum hans lauk var hún sjálf í fæðingarorlofi og fékk lánaðar hjá honum nokkrar góðar bækur úr MBA-náminu. Þar sem stutt var síðan hún hafði sjálf verið í námi var hún jafnframt fengin til að lesa yfir verkefni hér og þar, sem vakti enn meiri áhuga hennar á MBA-náminu.

Aðspurð hvort ákvörðun föður hennar, að fara í MBA-nám, hafi átt þátt í því að hún ákvað einnig að hefja MBA-nám haustið 2024, segir Rakel að hún telji það í raun hafa verið öfugt. Hún telur að áhugi sinn á náminu hafi átt þátt í ákvörðun pabba síns um að skrá sig á sínum tíma. Hins vegar hafi það vissulega styrkt hennar eigin staðfestu að sækja um námið þegar hann fór í gegnum það. Upplifun hans rímaði vel við það sem hún hafði kynnt sér um námið og þá varð henni ljóst að hún myndi sækja um þegar rétti tíminn kæmi.

Stuðningur fjölskyldunnar

Spurð hvaða ráð pabbi hennar hafi gefið henni áður en hún hóf MBA-námið og hvort hún hafi nýtt þau, segir Rakel að ekki hafi farið fram neitt formlegt samtal um ráð áður en hún hóf námið. Faðir hennar hvatti hana þó eindregið til að sækja um þegar hún bar það undir hann, enda vissi hann af eigin raun að námið myndi henta henni vel. Hann hefur jafnframt reynt að minna hana á mikilvægi þess að huga að heilsunni, hreyfa sig og sofa þrátt fyrir mikið álag, þó hún viðurkenni að hún fylgi því ekki alltaf til fulls.
Rakel segir það einnig hafa reynst ómetanlegt að faðir hennar skilji það álag sem fylgir því að vera í fullu starfi samhliða námi. Foreldrar hennar hafa verið mikilvæg stoð fyrir barnabörnin á löngum lærdómshelgum og veitt henni dýrmætan stuðning.

Samfélag sem endist

Rakel segir MBA-námið þegar hafa gefið sér ótal margt. Þar beri fyrst að nefna dýrmæta vini og samnemendur síðustu tveggja ára, sérfræðinga hver á sínu sviði, sem búi yfir ómetanlegri reynslu. Bekkurinn hafi þróast í sterkt stoðnet og samfélag sem þau muni öll búa að eftir útskrift. Námið sjálft, fræðin og kennslan hafi jafnframt staðist allar væntingar. Hún hafi fengið að kynnast fjölmörgum reynslumiklum kennurum og gestum og læra af þeim. MBA-námið hafi þegar styrkt hana í starfi og hún hyggst byggja áfram á þeirri þekkingu til frambúðar.

 

Share