Hafsteinn Einarsson

Gervigreind og leiðtoginn verður kennt í annað sinn í lotu fjögur á fyrra námsári EMBA. Námskeiðið er í umsjón Hafsteins Einarsson, dósents við Iðnaðarverkfræði-, vélaverkfræði- og tölvunarfræðideild.

Við spurðum Hafstein út í markmið námskeiðsins sem snýst m.a. um það að brúa bilið á milli tæknilegra framfara í gervigreind og hagnýtrar leiðtogafærni. Námskeiðið miðar að því að veita nemendum traustan skilning á lykilhugtökum gervigreindar, virkni hennar og takmörkunum, samhliða því að styrkja þá í hlutverki sínu sem stjórnendur. Hafsteinn leggur jafnframt áherslu á hagnýta nálgun þar sem nemendur læra að koma auga á raunveruleg tækifæri til að nýta tæknina í daglegum störfum. Þau fá tæki til að nýta gögn betur við ákvarðanatöku, auka eigin framleiðni og stuðla að bættri líðan og árangri starfsfólks. Með því að flétta saman fræðilega umfjöllun og verkefnavinnu tryggir námskeiðið að þekkingin nýtist beint í starfi.

Færni til framtíðar

Aðspurður hvaða færni og skilning nemendur öðlast segir Hafsteinn að hún snúi einkum að því að geta beitt spunagreind með markvissum hætti og þróað skilvirkar lausnir byggðar á henni. Þau öðlast ekki einungis tæknilega getu, heldur þjálfast einnig í gagnrýninni hugsun sem er nauðsynleg til að leggja mat á getu mismunandi líkana miðað við viðfangsefni hverju sinni. Nemendur fá einnig innsýn í þau flóknu siðferðilegu álitamál sem fylgja innleiðingu gervigreindar, sem gerir þeim kleift að taka ábyrgar ákvarðanir um notkun tækninnar.

Að lokum segir Hafsteinn jafnframt að gervigreind muni verða sífellt fyrirferðarmeiri í stjórnun og rekstri og krefjast nýrrar nálgunar af hálfu leiðtoga. Námskeiðið undirbýr nemendur undir þessar tæknibreytingar með því að hvetja til virkrar þátttöku í faglegri umræðu og veita þeim öryggi til að leiða tækninýjungar á sínum vinnustað. Með því að skilja bæði tækifærin og áhættuna eru þátttakendur betur í stakk búnir til að aðlagast hröðri þróun og tryggja að nýting gervigreindar sé bæði árangursrík og siðferðilega sjálfbær til lengri tíma litið.

Share